í hádeginu í dag átti ég viðtal við Begga og Pacas sem unnu í keppninni í þáttunum Hæðin.
Það er brjálæðislega mikið af málverkum heima hjá þeim sem Pacas hefur málað, þau eru dálítið flott og ég mundi alveg vilja eiga málverk eftir hann.
Þeir tóku vel á móti mér og voru sérstaklega glaðir að ég skyldi biðja þá um að vera með í bókinni minni.

Við settumst niður í stofunni sem er mjög flott og notarleg. Þeir buðu mér upp á appelsínusafa og pzzu sem þeir höfðu gert sjálfir, mér fannst hún svolítið krydduð en rosalega góð.
Viðtalið heppnaðist frábærlega vel og þeir voru jákvæðir og það er greinilegt að þeir elska lífið og hafa gaman af fólki.
Mér fannst ferlega fyndið þegar ég spurði þá hvað væri það vandræðalegasta sem þeir hefðu lent í og Beggi sagði skemmtilega sögu sem kom fyrir hann í Amsterdam, þar var hann að leita að vaxmyndasafni og þegar hann var að spyrjast til vega þá hló fólkið fyrir aftan hann og þá fattaði hann að hann var kominn á vaxmyndasafnið og var að spyrja eina vaxbrúðuna til vegar

Ég var hæst ánægður með viðtalið og hlakka til að sjá það í bókinni minni
Ég fór í annað viðtal seinnipartinn í dag, þá tók ég viðtal við Örn Árnason leikara og skemmtikraft. Ég hitti hann í Skipasundi í íbúð sem hann og aðrir eru að gera upp. Ég fór upp á hæðina þar sem hann var og hann kom og heilsaði mér í iðnaðarmannabuxum, ég held ég hafi verið svolítið að trufla hann við vinnuna en honum var alveg sama.
Við komum okkur fyrir í einu herbergi sem var í rúst, ég sem hélt að mitt herbergi liti illa út... en hann er nú að gera herbergið upp og hefur afsökun en ég hef ekki þannig afsökun fyrir mínu herbergi.

Viðtalið heppnaðist mjög vel og ég fékk skemmtileg svör og sum voru bara fyndin, eins og þegar ég spurði hann hvort hann hefði einhver ráð að lokum fyrir lesendur eða hvort hann vildi segja eitthvað annað þá svaraði hann #bara að fólk ætti að lesa bókina til enda# þetta er gott ráð og ég vona að fólk fari eftir því
Ég tók myndir af mér og Begga og Pacasi og mér og Erni Árnasyni (hann setti á mig kanínueyru á einni myndinni) og ég set þær fljótlega inn á síðuna mína.
kv. Höddi